Sony Xperia M5 - Gagnatengingu deilt

background image

Gagnatengingu deilt

Þú getur deilt gagnatengingunni með öðrum tækjum á nokkra vegu:

USB-tjóðrun – gagnatengingunni deilt með einni tölvu um USB-snúru.

Bluetooth® tjóðrun – gagnatengingunni deilt með allt að fimm tækjum um Bluetooth®.

Færanlegur Wi-Fi heitur reitur – gagnatengingunni deilt samtímis með allt að 8 öðrum

tækjum, þ. á m. tækjum sem styðja við WPS-tækni.

Gagnatengingu deilt með USB-snúru

1

Slökktu á öllum USB-tengingum við tækið.

2

Notaðu USB-snúruna sem fylgdi tækinu til að tengja tækið við tölvu.

3

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

4

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Tjóðrun og færanlegur heitur reitur.

5

Dragðu sleðann við hliðina á

USB tjóðrun til hægri og pikkaðu á Í lagi ef um það er

beðið. birtist á stöðustikunni þegar tenging er komin á.

6

Afmerktu

USB tjóðrun gátreitinn eða aftengdu USB-snúruna til að hætta að deila

gagnatengingunni.

Þú getur ekki notað USB-snúru til að deila gagnatengingu tækisins og SD-korti á sama tíma.

Gagnatengingu deilt með öðru Bluetooth® tæki

1

Gakktu úr skugga um að búið sé að para tækið þitt og hitt Bluetooth® tækið

saman og að kveikt sé á gagnaumferð.

2

Tækið þitt: Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Tjóðrun og færanlegur heitur reitur og

pikkaðu síðan á sleðann

Bluetooth tjóðrun til að virkja eiginleikann.

4

Bluetooth® tæki: Settu tækið upp þannig það fái nettengingu með Bluetooth®. Ef

tækið er tölva er vísað til viðeigandi leiðbeiningar til að ljúka uppsetningunni. Ef

tækið er með Android™ stýrikerfi skaltu pikka á stillingatáknið við hliðina á heiti

tækisins sem það er parað við undir

Stillingar > Bluetooth > Pöruð tæki og merkja

svo við

Netaðgangur gátreitinn.

5

Tækið þitt: Pikkaðu á Stillingar við hliðina á paraða tækinu. Merktu síðan við

reitinn fyrir internetaðgang. Bíddu eftir að birtist á stöðustikunni. Þegar hún

birtist er uppsetningu lokið.

6

Til að hætta að deila gagnatengingu pikkarðu aftur á

Bluetooth tjóðrun sleðann til

að gera eiginleikann óvirkan

Slökkt er á

Bluetooth tjóðrun virkninni í hvert sinn sem þú slekkur á tækinu eða slekkur á

Bluetooth® virkninni.

Frekari upplýsingar um pörun og virkjun gagnaumferðar má finna hér:

Tækið parað við annað

Bluetooth® tæki

á síðu 124 og

VPN-neti (virtual private network) bætt við

á síðu 52.

49

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Tækið þitt notað sem heitur WiFi heitur reitur

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Tjóðrun og færanlegur heitur reitur.

3

Pikkaðu á

Stillingar heits Wi-Fi reits > Frumstilla heitan Wi-Fi reit.

4

Færðu inn

Heiti netkerfis (SSID) upplýsingarnar.

5

Pikkaðu á reitinn

Öryggi til að velja gerð öryggis. Sláðu inn lykilorð ef með þarf.

6

Pikkaðu á

Vista.

7

Pikkaðu á og dragðu sleðann við hliðina á

Wi-Fi heitur reitur til hægri.

8

Sé beðið um það skaltu pikka á

Í lagi til staðfestingar. birtist á stöðustikunni

þegar færanlegi Wi-Fi heiti reiturinn er virkur.

9

Til að hætta að deila gagnatengingu í gegnum Wi-Fi dregurðu sleðann við hliðina á

Wi-Fi heitur reitur til vinstri.

WPS-stutt tæki leyft til að nota gagnaflutningatengingu

1

Gættu þess að tækið sé stillt þannig að það virki sem færanlegur Wi-Fi heitur

reitur.

2

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Tjóðrun og færanlegur heitur reitur >

Stillingar heits Wi-Fi reits.

4

Pikkaðu á sleðann

Finnanlegt til að kveikja á eiginleikanum.

5

Undir

Frumstilla heitan Wi-Fi reit skal ganga úr skugga um að færanlegi heiti

reiturinn sé varinn með lykilorði.

6

Pikkaðu á

WPS takkavöktun og fylgdu leiðbeiningunum. Einnig má pikka á >

WPS-opnun með PIN-númeri og slá inn PIN-númerið sem birtist á WPS-tækinu.

Heiti færanlegs heits reits breytt eða hann tryggður

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Tjóðrun og færanlegur heitur reitur.

3

Pikkaðu á

Stillingar heits Wi-Fi reits > Frumstilla heitan Wi-Fi reit.

4

Sláðu inn

Heiti netkerfis (SSID) fyrir netkerfið.

5

Til að velja gerð öryggis pikkarðu á

Öryggi.

6

Sláðu inn lykilorð ef með þarf.

7

Pikkaðu á

Vista.