Myndavélarstillingar
Til að stilla ljósmyndavélastillingar
1
Kveiktu á myndavélinni.
2
Pikkaðu á til að birta allar stillingar.
3
Veldu stillinguna sem þú vilt breyta og breyttu að vild.
103
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Yfirlit yfir stillingar myndavélar
Upplausn
Hægt er að velja á milli nokkurra stillinga fyrir upplausn og myndhlutfall áður en mynd er
tekin. Mynd í meiri upplausn þarf meira minni.
21MP
5312×3984(4:3)
21 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í
mikilli upplausn.
16MP
5344×3008(16:9)
16 megapixla upplausn í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.
8MP
3264×2448(4:3)
8 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í
mikilli upplausn.
3MP
2048×1536(4:3)
3 megapixla upplausn í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í
mikilli upplausn.
2MP
1920×1088(16:9)
2 megapixla upplausn í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.
VGA
640×480(4:3)
VGA snið með 4:3 myndhlutfalli.
Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni
Handvirkt.
Tímastilling
Með tímastillinum er hægt að taka mynd án þess að halda á tækinu. Notaðu þennan
eiginleika til að taka sjálfsmyndir eða hópmyndir þar sem allir geta verið á myndinni. Þú
getur einnig notað tímastilli ef þú vilt koma í veg fyrir að myndavélin hristist í myndatöku.
10 sek.
Veldu 10 sekúndna bið frá því að ýtt er á afsmellarann þar til að myndin er tekin.
2 sek.
Veldu 2 sekúndna bið frá því að ýtt er á afsmellarann þar til að myndin er tekin.
0,5 sek.
Veldu hálfrar sekúndu bið frá því að ýtt er á afsmellarann þar til að myndin er tekin.
Slökkt
Myndin er tekin þegar þú ýtir á afsmellarann.
Hlut fylgt eftir
Þegar þú velur hlut með því að snerta hann í myndglugganum fylgir myndavélin honum
fyrir þig.
HDR
Notaðu HDR (hátt virkt svið) stillinguna til að taka mynd á móti sterkri baklýsingu eða við
aðstæður þar sem birtuskilin eru skörp. HDR bætir upp fyrir tapið á smáatriðum og skilar
mynd sem sýnir bæði dökk og ljós svæði.
Þessi stilling er einungis í boði í hvítjöfnunar-/lýsingargildis-/HDR-stillingunum í
Handvirkt
tökustillingunni.
104
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
ISO
Hægt er að stilla næmi ISO svo það aðlagist sjálfkrafa eða laga það handvirkt að
næmisstillingum frá 100 upp í 3200.
Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni
Handvirkt.
Mæling
Þessi eiginleiki ákvarðar sjálfkrafa rétta lýsingu með því að mæla magn ljóssins í
myndefninu sem á að taka mynd af.
Miðjun
Ákvarðar lýsingu byggt á birtustigi miðs myndefnisins.
Punktur
Stillir lýsingu á mjög litlum hluta myndarinnar sem þú vilt taka.
Meðaltal
Reiknar út lýsingu samkvæmt magni ljóssins á allri myndinni.
Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni
Handvirkt.
Sjálfvirk forskoðun mynda
Þú getur valið að forskoða myndir sem þú hefur nýlokið við að taka.
Kveikt
Þegar þú hefur tekið mynd geturðu forskoðað hana niðri í hægra horni skjásins í 3 sekúndur.
Aðeins fremri myndavél
Þegar þú hefur tekið mynd með myndavélinni að framan geturðu forskoðað hana niðri í hægra horni skjásins í
3 sekúndur.
Slökkt
Myndin eða myndskeiðið vistast að töku lokinni og engin forskoðun birtist.
Flass
Notaðu flassið til að taka myndir þegar lýsing er léleg eða myndefni er baklýst. Eftirfarandi
valkostir eru í boði þegar þú pikkar á flasstáknið á myndavélarskjánum:
Sjálfvirkt
Myndavélin velur sjálfkrafa hvort lýsingaraðstæður kalla á notkun flass.
Fylliflass
Notaðu þessa stillingu þegar bakgrunnurinn er bjartari en myndefnið. Þessi stilling kemur í veg fyrir
óæskilega dökka skugga.
Laga rauð augu
Dregur úr rauðum lit í augum þegar tekin er mynd.
Slökkt
Slökkt er á flassinu. Stundum geta myndgæði verið betri án flass, jafnvel þótt birtuskilyrði séu léleg.
Stöðug hönd er forsenda töku góðra mynda án flass. Notaðu tímastillingu til að forðast að myndir verði
óskýrar.
Vasaljós
Flassið lýsir stöðugt á meðan myndir eru teknar.
Val á umhverfisstillingu
Umhverfisstilling gerir þér kleift að setja upp myndavélina á fljótlegan hátt fyrir algengar
aðstæður með því að nota forstilltar umhverfisstillingar. Myndavélin velur stillingar sem
passa við valið umhverfi, til að tryggja bestu mögulegu myndina.
Slökkt
Slökkt er á umhverfisstillingu og þú getur tekið myndir handvirkt.
Mjúk húð
105
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Taktu andlitsmyndir með ýktum fegurðaráhrifum.
Mjúk smella
Notað fyrir töku mynda með mjúkum bakgrunni.
Óskýrleikavörn
Notað til að lágmarka hristing þegar tekið er í rökkri.
Landslag
Notað fyrir landslagsmyndir. Myndavélin stillir fókus á fjarlæga hluti.
Baklýsingar-leiðréttingar-HDR
Notað til að bæta smáatriði í myndum með miklum birtuskilum. Innbyggða baklýsingarleiðréttingin
metur myndina og stillir hana sjálfkrafa til að lýsa myndina rétt.
Andlitsmynd að nóttu
Notað þegar andlitsmyndir eru teknar að nóttu til eða í dauflýstu umhverfi. Vegna langs lýsingartíma
verður að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu yfirborði.
Næturmynd
Notað þegar myndir eru teknar að nóttu til eða í dauflýstu umhverfi. Vegna langs lýsingartíma verður
að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu yfirborði.
Handstýrð ljósaskipti
Notað til að taka dauflýstar myndir og draga úr suði og þoku.
Mikið ljósnæmi
Notað til að taka myndir án flass í dauflýstu umhverfi. Dregur úr þoku.
Matur
Notað til að taka myndir af mat í björtum litum.
Gæludýr
Notað til að taka myndir af gæludýrum. Dregur úr þoku og rauðum augum.
Strönd
Notað til að taka myndir af umhverfi við sjó eða vatn.
Snjór
Notað í björtu umhverfi til að koma í veg fyrir yfirlýstar myndir.
Partí
Notað við töku af myndefni í illa lýstu umhverfi innandyra. Þetta umhverfi nemur bakgrunnsljós eða
kertaljós innandyra. Vegna langs lýsingartíma verður að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu
yfirborði.
Íþróttir
Notað við töku af myndefni á mikilli hreyfingu. Stuttur lýsingartími dregur úr óskýrleika vegna hreyfingar.
Skjal
Notað fyrir myndir af texta eða teikningum. Gefur myndinni skarpari birtuskil.
Flugeldar
Notað til að taka myndir af flugeldum í allri sinni dýrð.
Þessar stillingar eru einungis í boði í
Handvirkt tökustillingunni.