Sony Xperia M5 - Græjur

background image

Græjur

Græjur eru lítil forrit sem þú getur notað beint á heimaskjánum. Þær virka líka sem

flýtileiðir. Til dæmis gerir veðurgræjan þér kleift að sjá helstu veðurupplýsingar beint á

heimaskjánum. Þegar þú pikkar á græjuna opnast svo allt veðurforritið. Þú getur sótt fleiri

græjur á Play Store™.

Græju bætt við heimaskjáinn

1

Haltu inni tómu svæði á Heimaskjár þangað til tækið titrar pikkaðu síðan á

Græjur.

2

Finndu og pikkaðu á græjuna sem þú vilt bæta við.

Stærð græju breytt

1

Haltu græju inni þangað til hún er valin, slepptu síðan græjunni. Ef hægt er að

breyta stærð græjunnar, t.d. dagbókargræju, birtast rammi og stækkunarpunktar.

2

Dragðu punktana inn eða út til að minnka eða stækka græjuna.

3

Til að staðfesta nýja stærð græjunnar pikkarðu einhvers staðar á Heimaskjár.

Græja færð

Snertu og haltu græjunni þar til hún er valin og dragðu hana svo á nýja staðinn.

Græja fjarlægð

Snertu og haltu græjunni þar til tækið titrar og dragðu hana svo á

Fjarlægja af

heimaskjá.